Fréttir
bleikjuráðstefna
Bleikjuradstefna

Bleikjuráðstefna 27. október n.k.

19.10.2006

Bleikjan er að margra áliti sá fiskur sem best hentar til fiskeldis á Íslandi, en hún er vel aðlöguð að lífi á norðurslóðum og nær útbreiðsla hennar norðar ern nokkurrar annarrar ferskvatnsfisktegundar. Fjallað verður um bleikjuna á ráðstefnu föstudaginn 27. október n.k. þar sem stefnt er að því m.a. að gefa yfirlit yfir stöðu og framtíðaráform í bleikjueldi á Íslandi.

Dagskrá ráðstefnunnar er viðamikil og áhugaverð þar sem fjallað verður um flest það sem huga þarf að við bleikjueldi. Nánari upplýsingar er að finna á http://www.fiskeldi.is/bleikjuradst.html

Á ráðstefnuna er hægt að skrá sig með að hringja í síma Hólaskóla 455 6300 eða með því að senda tölvupóst (holaskóli@holar.is).

Þátttökugjald er 6.000 kr á mann og á að greiða það inn á reikning Landsambands fiskeldisstöðva: 526-14-605243 kt, 460187-1419

DAGSKRÁ:

Fundastjórar

Finnbogi Jónsson, Landsamband fiskeldisstöðva og Fiskeldishópi AVS og Skúli Skúlason, Hólaskóla

Innritun

Innritun hefst klukkan 09:00

Setning

Ráðstefnan hefst klukkan 09:30 með ávarpi landbúnaðarráðherra

Yfirlit frá bleikjueldisstöðvum

  • Bleikjueldi hjá Samherja, Jón Kjartan Jónsson (20 mín
  • Bleikjueldið hjá fiskeldisstöðinni Glæðir ehf. á Kirkjubæjarklaustri, Birgir Þórisson (10 mín
  • Bleikjueldi hjá Fiskeldinu Haukamýragili, Jóhann Geirsson (10 mín)
  • Framleiðslukostnaður í bleikjueldi, Aage Steinsson (15 mín)
  • Umræður (20 mín)

Kynbætur og líffræði bleikju

  • Kynbætur á bleikju fyrir íslenskt fiskeldi, Einar Svavarsson (15 mín)
  • Bleikjukynbætur hjá Stofnfiski, Jónas Jónasson (15 mín)
  • Vöxtur bleikju, Albert K. Imsland (15 mín)
  • Áhrif plöntuhráefna á vöxt og viðgang bleikju, Ólafur I. Sigurgeirsson (10 mín)
  • Þörf á framtíðarrannsóknum á fóðri fyrir bleikju, Jón Árnason (10 mín)
  • Betri vatnsnýting í bleikjueldi, Ragnar Jóhannsson
  • Sjúkdómar og forvarnir í bleikjueldi, Gísli Jónsson (15 mín)
  • Forvarnir gegn nýrnaveiki - rannsóknaaðferðir, Sigurður Helgason (15 mín)
  • Umræður (20 mín)

 

 Rekstur, vinnsla og markaðsmál

  • Gæðastýring í bleikjueldi, Soffía Vala Tryggvadóttir (15 mín)
  • Með bleikju á boðstólum, Guðbjörg Glóð Logadóttir (15 mín)
  • Lífrænt bleikjueldi, Gunnar Á. Gunnarsson (15 mín)
  • Markaðsmál - framtíðarskipulag og samstarf, Guðbergur Rúnarsson (15 mín)
  • Bleikja sem markaðsvara -Helstu niðurstöður, Árni Ólafsson (15 mín)
  • Samkeppnishæfni bleikjueldis Íslandi, Valdimar Ingi Gunnarsson (15 mín)
  • Umræður (20 mín)

 

 Almennar umræður og stefnumótun í rannsókna og þróunarvinnu

  • Samantekt og áherslur í R&Þ, Helgi Thorarensen (15 mín)
  • Almennar umræður (30 mín)

 

Ráðstefnuslit

Gert er ráð fyrir að ráðstefnunni ljúki klukkan 18:00 og verða þá veitingar í boði landbúnaðarráðherra

 



Senda grein

header11


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica