Ákvarðanataka og bestun í sjávarútvegi
Markmiðið með meistaraverkefninu var að greina gögn sem safnað hefur verið sl. 5 ár um flakanýtingu, hringorma og los og sýna hvernig er hægt að nota þá þekkingu sem skapast hefur til að bæta afkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Í verkefni sínu þróaði Runólfur bestunarlíkan af ákvarðanatöku í útgerðarfyrirtæki og sýnir hann með því hvernig hægt er að notast við gögn og aðferðafræði af þessum toga við stýringu á sjávarútvegsfyrirtæki.
Allir eru velkomnir til að hlýða á Runólf greina frá meistaraverkefni sínu.

