Notkun róbóta í fiskvinnslu
Í verkefninu Meðhöndlun fiskstykkja með róbótum sem Marel vinnur nú að og AVS-sjóðurinn styrkti, er ætlunin að finna leiðir til að hagnýta róbóta í fiskvinnslu og þróa þá tækni og vinnsluaðferðir sem til þarf. Verkefnið hófst árið 2005 og er til tveggja ára og nú þegar hefur verið þróað skalanlegt og sveigjanlegt kerfi í þessum tilgangi.
Hjá Marel hafa nú verið gerðar tilraunir með færslu ferskra fiskstykkja með sérstökum róbótagripbúnaði, sem hannaður var sérstaklega til að fara með viðkvæmt hráefni, eins og t.d. fersk fiskstykki og lofa þessar prófanir góðu.

