Fréttir
Marel robot
Marel robot

Notkun róbóta í fiskvinnslu

18.9.2006

Róbótar (vélmenni) hafa lengi verið notaðir í bíla- og raftækjaiðnaði, en aðrar greinar hafa verið lengur að nýta sér þessa tækni. Í fiskiðnaði hefur tæknin þó smá saman verið ryðja sér til rúms á síðustu áratugum, t.d. í formi ýmissa roðfletti- og skurðarvéla. Nú vinnur fyrirtækið Marel að þróa nýja róbóta til notkunar í fiskvinnslu, tæki sem mun geta fært einstök fersk fiskstykki á milli t.d. færibanda.

Marel robot f laxÍ verkefninu Meðhöndlun fiskstykkja með róbótum sem Marel vinnur nú að og AVS-sjóðurinn styrkti, er ætlunin að finna leiðir til að hagnýta róbóta í fiskvinnslu og þróa þá tækni og vinnsluaðferðir sem til þarf. Verkefnið hófst árið 2005 og er til tveggja ára og nú þegar hefur verið þróað skalanlegt og sveigjanlegt kerfi í þessum tilgangi.

Hjá Marel hafa nú verið gerðar tilraunir með færslu ferskra fiskstykkja með sérstökum róbótagripbúnaði, sem hannaður var sérstaklega til að fara með viðkvæmt hráefni, eins og t.d. fersk fiskstykki og lofa þessar prófanir góðu.    



Senda grein

header10


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica