Orkustjórnunarkerfi
Marorka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í orkustjórnun og rannsóknum á sviði orkumála. Fyrirtækið framleiðir orkustjórnunarkerfi og veitir ráðgjöf vegna hönnunar orkukerfa skipa og orkustjórnunar um borð í þeim. Undanfarin ár hefur AVS stutt ötullega við bakið á Marorku við þróun á orkustjórnunarkerfinu Maren.
Maren er samheiti yfir fjölda eininga sem hver um sig hefur ákveðna eiginleika og hlutverk. Með Maren er mælingum safnað úr öllum orkukerfum skipsins og þær sýndar í rauntíma í einu viðmóti. Líkön af skipinu og orkukerfum þess eru notuð til að greina orkunotkunina og reikna út hvernig ná má fram sparnaði í olíunotkun miðað við aðstæður og þær skorður sem settar eru af skipstjórnendum. Auk þess eru reiknaðar út ýmsar afleiddar stærðir. Skýr framsetning þessara upplýsinga hjálpar skipstjórnarmönnum (skipstjóra, stýrimönnum og vélstjórum) við að taka ákvarðanir sem stuðla að orkusparnaði, auka verðmætasköpun og lágmarka útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Innleiðing Maren orkustjórnunarkerfisins hefur skilað góðum árangri og hefur sýnt að hægt er að ná allt að 8 % til 12 % sparnaði í olíunotkun.
Þróun Maren hefur staðið yfir síðan 2002 og fyrsta útgáfan, Maren 1, kom út í lok árs 2003. Hefur hún verið sett um borð í skip hérlendis og erlendis, aðallega fiskveiðiskip. Árið 2004 hófst hönnun og útfærsla nýrrar útgáfu, Maren 2. Nýja útgáfan byggir á Maren 1, en státar af nýju samskiptamódeli og íhlutabyggðri högun, ásamt nýju og bættu viðmóti. Maren 2 var kynnt í fyrsta sinn á Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi í september 2005. Það var Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sem afhjúpaði hugbúnaðinn, sem fékk verðlaun sem besta nýja varan á sýningunni.
Maren 2 hefur þegar verið sett um borð í nokkur skip, meðal annars um borð í hafrannsóknarskipið Árna Friðriksson. Þar er kerfið notað til að safna saman upplýsingum um orkunotkun skipsins við hin ýmsu veðurskilyrði og við notkun mismunandi veiðarfæra.
Maren kerfið er hannað þannig að bæta má við viðbótareiningum í samræmi við auknar þarfir og kröfur notenda. Meðal nýjunga sem kynntar hafa verið með tilkomu Maren 2 er að nú er hægt að láta kerfið stýra sjálfvirkt eftir niðurstöðu orkugreiningar. Í lok ársins verður lokið við uppsetningu Maren um borð í nýju og glæsilegu kúfiskveiðiskipi sem gert er út frá Kanada. Þar verða notaðar sjálfvirkar stýringar með Maren til að lágmarka orkunotkun hinna ýmsu kerfa um borð.
Til að auka enn frekar ávinning útgerðarinnar af notkun á Maren tækninni vinnur Marorku stöðugt að nýjum lausnum. Þá hefur Marorka hafið vinnu við að þróa viðbótareiningu sem finnur hagkvæmustu siglingarleið skipa. Hefur þessi eining fengið vinnuheitið Maren Pathfinder. Þessi eining mun nýta veður- og sjólagsspágögn samtímis mælingum frá orkukerfum til að finna hagkvæmustu siglingarleið. Ætlunin er að Pathfinder muni einnig nýtast til að ákvarða bestu veiðisvæði og togslóðir togveiðiskipa útfrá straumhraða, straumstefnu og fleira. Áætlað er að Pathfinder verkefninu ljúki 2009.
Það er stefna Marorku að vera þekkt sem leiðandi aðili á sviði orkurannsókna og orkustjórnunar og vera í fararbroddi á alþjóðlegum markaði. Sjá nánar heimasíðu fyrirtækisins www.marorka.com

