Beint í leiðarkerfi vefsins.
Um áramótin 2005/2006 lauk viðmiklu verkefni “Samanburðar á eldi villtra þorskseiða og eldisseiða í landeldi á Nauteyri við Ísafjarðadjúp og áframeldi í kvíum á Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp” sem var samstarfsverkefni Stofnfisks hf., Hraðfrystihússins Gunnvarar, Útibús Hafrannsóknastofnunarinnar á Ísafirði og Háafells ehf.
Íslendingar eru á meðal mestu fiskneysluþjóða í heimi og tengja það oft langlífi og góðu heilsufari þjóðarinnar almennt, en nú eru vissar blikur á lofti í þeim efnum, enda hefur fiskneysla, sérstaklega ungs fólks dregist verulega saman á undanförnum árum. AVS hefur styrkt verkefni þar sem markmiðið er að kanna viðhorf ungs fólks til fiskneyslu.
Marorka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í orkustjórnun og rannsóknum á sviði orkumála. Fyrirtækið framleiðir orkustjórnunarkerfi og veitir ráðgjöf vegna hönnunar orkukerfa skipa og orkustjórnunar um borð í þeim. Undanfarin ár hefur AVS stutt ötullega við bakið á Marorku við þróun á orkustjórnunarkerfinu Maren.