Þari til matar
Vaxandi áhugi á heilsufæði og aukinn áhugi á austurlenskri matargerð hefur skapað markað fyrir hollar vörur úr þara. Eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem AVS hefur styrkt á undanförnum árum nefnist Sala þara á neytendamarkað og er markmið þess að þróa vörur úr íslenskum þara, kanna hvort markaður sé fyrir þær vörur hér á landi og kanna þá hvort markaðurinn er nægjanlega stór til að það borgi sig að sinna honum. Stofnað hefur verið fyrirtækið Hollusta úr hafinu ehf, sem einnig áformar að athuga möguleika á sölu þarans á erlendan hollustu- og neysluvörumarkað.
![]() |
|
Ýmsar afurður úr þara, sem Hollusta úr hafinu framleiðir og selur á Íslandi |
Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru hefðbundnar vörur úr þara, en einnig hefur það þróað ýmsar nýjungar, t.d. kryddlegin söl og þykkni “söl puree”. Viðtökur við vörum fyrirtækisins hafa verið ágætar og ýtt undir áframhaldandi starfsemi félagsins á þessu sviði. Eftir að meiri reynsla fæst af markaðsetningu innanlands stefnir félagið að útflutningi á vörum úr þara, eins og fyrr segir.


