Fréttir
Eldiiskví
Eldiskví

Skýrsla um áframeldi 2004 komin út

5.7.2006

Þeir sem fá þorskkvóta til áframeldis þurfa að skrá og skila ýmsum gögnum um vinnu og árangur hvers árs. Hafrannsóknastofnunin vinnur úr þessum upplýsingum og gefur út hvert ár fjölrit um föngun og áframeldi þorsks.

Með úthlutun á árlegum 500 tonna þorskeldiskvóta hefur átt sér stað mikil aukning í áframeldi á þorski. Fyrsta úthlutun var fyrir fiskveiðiárið 2001/2002 og með úthlutuninni 2004/2005 er lokið við fjórar úthlutanir af fimm.

Á fiskveiðiárinu 2004/2005 sóttu 14 fyrirtæki um tæplega 790 tonna kvóta til áframeldis, en til ráðstöfunar voru 500 tonn, sem 11 fyrirtæki fengu að þessu sinni.

Á árinu 2004 var slátrað um 595 tonnum af þorski úr áframeldi sem er veruleg aukning frá árinu 2003 en þá var slátrað um 390 tonnum. Birgðir af lifandi áframeldisþorski fóru úr um 565 tonnum í byrjun ársins upp í um 930 tonn í lok ársins.

Gerður er greinarmunur á slátruðu magni og framleiðslu. Með framleiðslu er átt við aukningu á lífþunga í eldinu. Á árinu 2004 var framleiðslan um 565 tonn en um 375 tonn á árinu 2003. Áætlað er að slátrað verði um 1.000 tonnum úr áframeldi á árinu 2005.

Valdimar Ingi Gunnarsson verkefnisstjóri fiskeldishóps AVS hefur haft umsjón með samantekt þessara upplýsinga, sem birtast í fjölritum Hafró.

Gefin hafa verið út þrjú fjölrit um áframeldið og má nálgast þessar skýrslur hér



Senda grein

header10


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica