Fréttir

Þorskseiði

Þorskeldiskarfan – Fundur á Ísafirði - 19.6.2006

Þessa dagana er verið að hefja vinnu við nokkur ný þorskeldisverkefni og hafa menn valið að setja þessi verkefni saman í eina körfu og samnýta vinnuna sem mest til að hámarka árangurinn. Á miðvikudaginn 21. júní nk. kl 9:30 verður haldinn fundur á Ísafirði þar sem þessi verkefni verða kynnt. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra mun setja fundinn.

Lesa nánar

 
Hausar á grindum

Peningalykt - 16.6.2006

Hér áður fyrr þótti ekkert tiltökumál þó lykt frá bræðslum og fiskvinnslum lægi yfir heilu byggðunum dögum saman, lyktin fékk það jákvæða heiti peningalykt, enda merki um mikinn afla og miklar tekjur. Í dag er lykt af þessu tagi ekki ásættanleg og því hefur AVS styrkt verkefni sem hefur það að markmiði að finna leiðir til að draga úr mengun frá þurrkverksmiðjum.

Lesa nánar

 
Thorskshaus

Er hætta fólgin í því að borða fisk? - 8.6.2006

Á síðastliðnu ári hófst verkefni á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins sem ber heitið “Verðmæti og öryggi íslenskra sjávarafurða” og hefur AVS styrkt þetta verkefni. Megin markmið verkefnisins er að sýna fram á öryggi íslenskra sjávarafurða með vísindalegum aðferðum og þar með tryggja tekjur okkar af útflutningi sjávarafurða.

Lesa nánar

 

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica