Fréttir
AVS logo
AVS

Úthlutun styrkja AVS rannsóknasjóðs liggja nú fyrir

31.5.2006

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur sjórnar AVS rannsóknasjóðsins um úthlutanir til 51 verkefnis. Í tillögum stjórnar AVS voru til afgreiðslu 103 umsóknir, þannig að 52 umsóknum er hafnað að þessu sinni.

Af þeim verkefnum sem fá styrk eru 15 verkefni sem eru framhaldsverkefni, þ.e. verkefni sem unnið hefur verið að í eitt eða tvö ár. Ný verkefni eru því 36 talsins.

Mjög áberandi er mikið samstarf í verkefnum t.d. er að þessu sinni 85 fyrirtæki, stofnanir og skólar sem vinna að þessum verkefnum sem fá styrk. En þess má geta að yfir 400 einstaklingar hafa komið að umsóknum til sjóðsins frá því sjóðurinn tók til starfa árið 2003, sem gefur til kynna mikinn áhuga á verkefnum er tengjast rannsóknum og þróun í íslenskum sjávariðnaði til að auka verðmæti sjávarfangs.

Verkefnin sem fá styrk þetta árið eru mjög fjölbreytt eins og áður, sjóðurinn hefur flokkað styrki í fjóra meginflokka til að gefa nokkra mynd af því hvernig styrkir dreifast.

Að þessu sinni eru styrkt 9 verkefni í fiskeldi, 6 verkefni í líftækni, 10 markaðsverkefni og 26 verkefni er taka á veiðum, vinnslu, gæðum og búnaði og til samans er úthlutað 218.104 þús.kr.

Listi verkefna 2006.



Senda grein

header18


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica