Fréttir
Nýtt fiskiker afhjúpað
Nýja kerið sýnt á sýningunni í Brussel 9. maí

Nýtt fiskiker – betra hráefni

9.5.2006

Sæplast hefur þróað nýtt byltingarkennt fiskiker í samvinnu við Rannsóknastofnun fiskiðanaðrains, FISK Seafood hf og Háskóla Íslands. Fiskikerið var afhjúpað af sjávarútvegsráðherra Einari K. Guðfinnssyni á sjávarútvegssýningunni í Brussel í dag. AVS sjóðurinn styrkti þetta verkefni.

Þegar farið var að stað með verkefnið árið 2004 var markmiðið að minnka farg á fiski í neðstu lögum keranna og þar með að minnka rýrnun og mar á fiski, eða með öðrum orðum að bæta gæði hráefnis. Fyrstu hugmyndirnar vor þær að reyna að útbúa og þróa nokkurs konar hillukerfi í kerin. Sú hugmynd féll í grýttan jarðveg hjá væntanlegum notendum svo menn lögðust undir feld og reyndu að nálgast verkefnið með öðrum hætti.Nýtt fiskiker

Niðurstaðan var sú að byrja frá grunni og hanna alveg nýtt ker sem uppfyllti þau markmið að bæta gæði hráefnis og að bæta jafnframt nýtingu rúmmáls um borð í skipum, geymslum og flutningstækjum. Nú hefur nýtt ker litið dagsins ljós og er það nokkuð lægra en flest fiskiker eru í dag, einnig er kerið léttara, og við stöflun þá lokar efra kerið því neðra án þess að skítur frá lyftar berist í neðra kerið auk þess er rúmmálsnýting í lestum skipa og flutningstækjum umtalsvert betri. Nýja kerið staflast einnig með eldri kerum þannig að ekki er um neina slíka kerfisbreytingu að ræða. Það verður spennandi að fylgjast með og sjá hvernig þessu nýja keri vegnar og hvort ekki sé komið nýtt og betra tæki til að bæta nýtingu og gæði hráefnis.



Senda grein

header1


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica