Frostþurrkun sjávarfangs, spennandi kostur
Frostþurrkun matvæla er vel þekkt framleiðsluaðferð, en hefur aldrei verið stunduð hér á landi. Rækja hefur verið seld til fyrirtækja erlendis sem framleiða frostþurrkaðar afurðir, en þessi framleiðsluaðferð þykir henta vel til að varðveita viðkvæmar vörur. AVS sjóðurinn styrkti Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins til að gera nokkrar tilraunir með að frostþurrka sjávarfang.
Tækjasjóður Rannís styrkti Rf til að kaupa nýjan tilraunafrostþurrkara, en áður hafði Rf notast við gamalt og úr sér gengið tæki. Þetta verkefni var fyrst og fremst unnið til að undirbúa þróun á framleiðslu á frostþurrkuðum vörum úr íslensku sjávarfangi og byggja upp reynslu til að vinna við þetta framleiðsluferli ásamt því að vera í stakk búin til að sinna þeim er vildu gera tilraunir og kanna möguleika slíkrar vinnslu hér á landi.
Lesa má um þetta verkefni í skýrslu sem sjóðnum hefur borist frá verkefnisstjóra verkefnisins Guðjóni Þorkelssyni. Í skýrslunni má lesa að ýmsir möguleikar eru fyrir hendi hvað varðar afurðir sem henta fyrir frostþurrkun og má þar m.a. nefna fiskprotein, en í undirbúningi er að hefja tilraunavinnslu á próteinum úr uppsjávarfiskum á Sauðárkróki innan skamms. Þeir sem hafa hug á að kanna vinnslu frostþurrkaðra afurða er bent á að setja sig í samband við verkefnisstjóra verkefnisins.

