Fréttir
Lúða í eldi
Lúða

Lúðueldi í landi

10.4.2006

Á síðastliðnu ári hófst verkefnið “Samkeppnishæft lúðueldi í strandeldisstöðvum” sem AVS sjóðurinn styrkti. Í verkefninu er stefnt að því að kanna flesta þá þætti sem hafa áhrif á árangur í eldi.

Yfirlit

Markmið verkefnisins er eins og nafnið gefur til kynna að auka samkeppnishæfni lúðueldis í strandeldisstöðvum. Ætlunin er að skilgreina kjöreldisaðstæður, bæta fóður og fóðurnýtingu og þar með að auka framleiðni og draga úr framleiðslukostnaði. Vonast er til að draga megi úr framleiðslukostnaði um allt að þriðjung með því að ala lúðu við bestu aðstæður allan ferilinn.

Á Íslandi mun eldi á lúðu fyrst og fremst fara fram í strandeldisstöðvum meðan lúðueldi í samkepppnislöndum fer að mestu fram í sjókvíum. Því er afar mikilvægt að allur ferill strandeldis sé kortlagður og rannsakaður. Verkþættir verkefnisins taka á atriðum svo sem ljóslotu, hitastigi, seltu, súrefnismettun og fóðurgerð og athugað hvernig þessir þættir hafa áhrif á vöxt og fóðurnýtingu.

Í Noregi var framkvæmd samanburðarrannsókn sem gaf vísbendingar um að með því að ala lúðuseiði við langan dag og stutta nótt væri hægt að bæta verulega vöxt og fóðurnýtingu og mun þetta einnig vera skoðað í þessu verkefni hér á landi. Niðurstöður verða síðan teknar saman og efnahagslegur ávinningur metinn með bættum framleiðsluaðferðum.

Haustið 2005 var unnið að því að koma upp aðstöðu hjá Hólaskóla í Verinu á Sauðárkróki og hófst tilraunin formlega í janúar síðastliðnum. Niðurstöður verkefnisins verða síðan kynntar í skýrslu til AVS og þegar verkefninu lýkur er stefnt að því að birta ritrýndar greinar í fagtímaritum. Auk þess sem Arnþór Gústafsson fiskeldisfræðingur mun nýta hluta af niðurstöðum verkefnisins í lokaritgerð sína til meistaranáms í fiskeldi við Háskólann í Björgvin.

Verkefnisstjóri verkefnisins er Albert Kjartansson Imsland hjá Akvaplan-niva á Íslandi, en aðrir sem koma að verkefninu eru Háskólinn á Hólum, Fóðurverksmiðjan Laxá hf, Fiskey ehf og Ísaga hf.

Tilvísunarnúmer AVS: R 031-05



Senda grein

header3


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica