Beint í leiðarkerfi vefsins.
SÍF hf vann í samvinnu við Rf að tilraunum með útvötnun og geymsluþol á saltfiski. AVS rannsóknasjóður styrkti þetta verkefni og hefur nú verið gefin út skýrsla og birt vísindagrein um niðurstöður þessa verkefnis.
Frá 1999 hefur fyrirtækið SERO ehf starfað á Skagaströnd. SERO hefur þróað ýmsar gerðir bragðkjarna fyrir matvælaiðnaðinn. Ensím eru notuð til að brjóta niður prótein við framleiðslu sjávarbragðefnanna, sem fyrirtækið framleiðir. AVS sjóðurinn styrkti fyrirtækið með forverkefnisstyrk til að þróa þangbragðefni.