Rúmlega 100 umsóknir bárust
Á miðnætti þess 1. febrúar sl. höfðu borist rúmlega 100 umsóknir til AVS sjóðsins, og greinilegt að mikill hugur er í þeim sem vinna að rannsóknaverkefnum og nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi.
Samtals er sótt um 470 milljónir og er því ljóst að ekki verður hægt að koma á móts við nema hluta umsækjenda. Faghópar AVS hafa nú fengið það vandasama hlutverk að vega og meta allar umsóknirnar og er vonast til að hægt verði að tilkynna umsækjendum um úthlutun upp úr miðjum apríl.

