Fréttir

Áhugi á þorskkvóta til áframeldis

26.1.2006

Þann 23. jan. sl. var rann út lokafrestur til að skila inn umsóknum í þorskeldiskvótann. Alls bárust 12 umsóknir, þar sem sótt var um tæp 800 tonn. Það er greinilegt að áhugi þeirra sem hafa verið leiðandi í þessum tilraunum hefur ekki minnkað.

Nú verður starf þeirra sem stundað hafa eldi fram til þessa vegið og metið og jafnframt lagt mat á umsóknir aðila sem ekki hafa verið með eldi áður. Gert er ráð fyrir að niðurstaða um úthlutun liggi fyrir upp úr miðjum febrúar.



Senda grein

header3


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica