Efling rannsókna og þróunarstarfsemi á Sauðárkróki.
Kynningarfundur Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Hólaskóla og Fisk Seafood um uppbyggingu á rannsókna- og þróunarstarfsemi í Þróunarsetrinu Verinu á Sauðárkróki verður haldinn n.k. fimmtudag 5. janúar kl. 16:00-18:00 í Verinu rannsókna- og kennsluhúsnæði Hólaskóla á Sauðárkróki.
AVS hefur styrkt nokkur verkefni sem unnin eru í samstarfi þessara aðila, og nýtist þessi nýja aðstaða vel til mikilvægra rannsókna- og þróunarverkefna í fiskeldi og matvælavinnslu.
Mikið samstarf hefur átt sér stað milli Rf og FISK Seafood á sviði vinnslu sjávarafla og einnig hafa Rf, Hólaskóli og Háskólinn á Akureyri unnið mikið saman að ýmsum fiskeldisverkefnum. AVS hefur átt þátt í því að fjármagna þessi verkefni sem unnin hafa verið af þessum aðilum. Nú hefur verið byggð upp góð aðstaða á Sauðárkróki og er komið að því að gerður verður samstarfssamningur milli Rf, Hólaskóla og FISK Seafood til að styrkja þetta samstarfið enn frekar á sviði rannsókna er tengjast fiskeldi og matvælavinnslu. Væntanlega mun Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri ásamt fleiri aðilum koma að þessum samningi.
Tilgangur samningsins er að leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu, rekstur og nýtingu á Þróunarsetri Hólaskóla sem staðsett er á Háeyri 1 við höfnina á Sauðárkróki. Samstarfið verður í formi skilgreindra verkefna og munu sérfræðingar og nemar í framhaldsnámi koma að þeim. Bæði sjávarútvegs- og iðnaðarráðherra hafa ákveðið að styrkja samstarfið með sérstöku fjárframlagi til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins sem nemur 6 m.kr. á ári. Fjármagnið verður notað til að efla rannsóknir Rf á Sauðárkróki.
Dagskrá kynningarfundarins:
1. Ávarp Einar K. Guðfinnsson, Sjávarútvegsráðherra
2. AVS Rannsóknasjóðurinn, Friðrik Friðriksson
3. Rf á Norðurlandi, Sjöfn Sigurgísladóttir Rf
4. Samstarf FISK hf. við skóla og rannsóknastofnanir, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri
5. Fiskeldi og rannsóknir hjá Hólaskóla. Helgi Thorarensen Hólaskóla
6. Fóður og eldi. Rannveig Björnsdóttir Rf og Háskólinn á Akureyri
7. Prótein úr sjávarfangi og endurnýting vatns í fiskeldi, Ragnar Jóhannsson, Rf og Hólaskóla
8. Samstarf og uppbygging á Sauðárkróki, Skúli Skúlason Hólaskóla
Fundarstjóri verður Skúli Skúlason

