Fréttir

Bólusetning þorskseiðis

Vetrarsár í laxfiski og þorski – vonir um bætt bóluefni - 30.1.2006

Vetrarsár (winter ulcers) kallast bakteríusjúkdómur sem herjar á lax, regnbogasilung og þorsk og orsakast af sýkingu með Moritella viscosa. Sjúkdómurinn kemur upp í eldisfiski sem alinn er í köldum sjó við N-Atlantshaf og einkennist af sárum sem myndast á fiskunum og valda dauða og umtalsverðu verðmætatapi.

Lesa nánar
 
Emilía Martinsdóttir

Ungir fiskneytendur - 27.1.2006

Íslendingar eru á meðal mestu fiskneysluþjóða í heimi og tengja það oft langlífi og góðu heilsufari þjóðarinnar almennt, en nú eru vissar blikur á lofti í þeim efnum, enda hefur fiskneysla, sérstaklega ungs fólks dregist verulega saman á undanförnum árum. AVS hefur styrkt verkefni þar sem markmiðið er að kanna viðhorf ungs fólks til fiskneyslu. Lesa nánar
 

Áhugi á þorskkvóta til áframeldis - 26.1.2006

Þann 23. jan. sl. var rann út lokafrestur til að skila inn umsóknum í þorskeldiskvótann. Alls bárust 12 umsóknir, þar sem sótt var um tæp 800 tonn. Það er greinilegt að áhugi þeirra sem hafa verið leiðandi í þessum tilraunum hefur ekki minnkað. Lesa nánar
 

Efling rannsókna og þróunarstarfsemi á Sauðárkróki. - 4.1.2006

Kynningarfundur Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Hólaskóla og Fisk Seafood um uppbyggingu á rannsókna- og þróunarstarfsemi í Þróunarsetrinu Verinu á Sauðárkróki verður haldinn n.k. fimmtudag 5. janúar kl. 16:00-18:00 í Verinu rannsókna- og kennsluhúsnæði Hólaskóla á Sauðárkróki.

Lesa nánar

 

header4


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica