Fréttir
Sjavautvegsradherra
Einar Kristinn Guðfinnsson
Sjávarútvegsráðherra

Sjávarútvegsráðherra kynnir starfsemi AVS

29.11.2005

Sjávarútvegsráðherra Einar Kristinn Guðfinnsson hélt blaðamannafund í dag og var hann haldinn í HB-Granda á Grandagarði. Einar kynnti starfsemi sjóðsins á árinu 2005 og fór yfir helstu tölur í starfsemi sjóðsins síðastliðin þrjú ár. Einar vakti athygli á þeim mikla krafti sem AVS sjóðurinn hefur leyst úr læðingi á sviði rannsókna og þróunar í íslenskum sjávarútvegi.

Ráðherra fjallaði um mikilvægi þess að stundaðar væru rannsóknir í sjávarútvegi, þar væri mikil þekking fyrir hendi sem þyrfti að virkja áfram til að auka verðmæti sjávarfangs. AVS sjóðurinn gerði það að verkum að fyrirtæki, háskólar og stofnanir gætu sameinast um mikilvæg verkefni. Alls hafa verið styrkt 145 verkefni á síðastliðnum þremur árum með rúmum 400 milljónum kr. og þar sem styrkirnir eru aldrei hærri en 50% af kostnaði verkefna, oftast lægri, þá mætti ætla að sjóðurinn hafi orðið til þess að rannsókna- og þróunarverkefni fyrir rúman milljarð kr. hafi verið unnin í íslenskum sjávarútvegi á liðum árum. Kynning ráðherra.

AVS rannsóknasjóðurinn hefur gefið út ársyfirlit 2005 um starfsem sjóðsins, yfirlitið er hægt að nálgast hér.

AVS sjóðurinn hefur styrkt mörg og fjölbreytt verkefni á undanförnum þremur árum og voru fjórir verkefnisstjórar verkefna sem AVS sjóðurinn hefur styrkt fengnir til að kynna verkefnin sín.

Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku ehf kynnti verkefnið “Sjálfvirk pökkun á ferskum fiskflökum og bitum” sem hann vann í samvinnu við HB-Granda hf. Smíðað hefur verið samvalstæki sem var sett upp til bráðabirgða hjá HB-Granda hf, tækið skilaði því sem stefnt var að og er nú verið að vinna að enn frekari sjálfvirkni við meðhöndlun á ferskum flökum og flakabitum í tengslum við samvalstækið.  Kynning á verkefninu.

Dr. Vigfús Jóhannsson framkvæmdastjóri Stofnfisks, kynnti verkefnið “Kynbætur og seiðaeldi fyrir þorskeldi” markmið verkefnisns er m.a. að framleiða þorskseiði, auka lifun þeirra og finna leiðir til að hámarka árangur í eldi seiða. Auk þess er stefnt að því að finna heppilega þorskstofna til myndunar á grunnstofni og setja upp kynbótaáætlun fyrir þorskeldi á Íslandi. Kynning á verkefninu.

Kári P. Ólafsson, matvælafræðingur hjá Reykofnin-Grundarfirði kynnti verkefni “Íslensk sæbjúgu”, en markmið þessa verkefnis var að koma á fót vinnslu á sæbjúgum í samvinnu við erlenda kaupendur. Á Grundarfirði er nú starfrækt vinnsla á sæbjúgum og er gerður út einn bátur til veiðanna. Kynning á verkefninu.

Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins kynnti verkefnið “Viðhorf og fiskneysla ungs fólks; bætt ímynd sjávarafurða”. Markmið verkefnisins er að stuðla að aukinni neyslu sjávarafurða, með neyslukönnunum og kynningarátaki. Kynning á verkefninu.



Senda grein

header7


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica