Fréttir
Igulkerjahrogn
Litir ígukerjahrogna

Bætt vinnslutækni skilar hærri verðum fyrir ígulkerjahrogn

21.11.2005

Fyrirtækið Gullker ehf í Stykkishólmi fékk stuðning frá AVS til að kanna hvort markaður væri fyrir íslensk ígulkerjahrogn í Bandaríkjunum og hvort Japansmarkaður hefði breyst frá því að hann hrundi fyrir um 15 árum síðan.

Í ljós kom að töluverð framþróun hefur átt sér stað í vinnslu ígulkerjahrogna á þeim tíma sem Íslendingar hafa ekki unnið ígulker. Þar af leiðandi var ekki unnt að notast beint við þær framleiðsluaðferðir sem fundnar voru út hér á landi á níunda áratug síðustu aldar. Til að mynda eru nú notuð önnur hjálparefni við vinnslu ígulkerjahrogna heldur en fyrir 15 árum síðan – efni sem auka gæði og geymsluþol.

Sýnir þetta glögglega hversu hættulegt það getur verið fyrir framleiðslusvæði ef vinnsla ákveðinnar tegundar leggst af með öllu í svo langan tíma. Framleiðsluþekkingin stendur í besta falli í stað en líklegra er að hún tapist/gleymist að einhverju leyti á meðan önnur framleiðslusvæði halda áfram að þróa sína vöru og kröfur markaðarins aukast að sama skapi. Igulkerjahrogn

Það er einmitt þetta sem gerðist á ígulkerjamarkaðnum í Japan.  Gæðakröfur markaðarins jukust til muna á þessu tímabili án þess að markaðurinn færi að greiða hærra verð í japönskum yenum.  Hæstu verð fyrir hágæðahrogn úr grænum ígulkerjum (skollakopp) voru milli 9 og 10.000 yen/kg fyrir 15 árum og hafa þau verð ekki breyst að ráði.  Hins vegar fengust ekki nema um 3-5000 yen/kg fyrir hrogn af þeim gæðum sem seldust á 9-10.000 yen fyrir 15 árum síðan þar sem gæði þeirra uppfylla ekki kröfur makaðarins í dag.

 

Ígulkerjahrogn tilbúin á markað

 

Ígulkerjahrogn eru ákaflega viðkvæm vara.  Þau eru viðkvæm fyrir hnjaski, hitastigi, saltstyrk o.fl.  Ef öll meðhöndlun er eins og best verður á kosið, launa þau framleiðanda sínum ríkulega.  Ef hins vegar einhver misbrestur verður á í framleiðslu eða flutningni þá getur varan skemmst algerlega.

Gullker athugaði með stuðningi frá AVS þolmörk unninna ígulkerjahrogna við mismunandi áreiti (hnjask, hitastig o.fl.).  Reynt var að meta hvaða þættir bæru mesta ábyrgð á viðkvæmni vörunnar og í framhaldi af því reynt að breyta framleiðslunni til að auka þol hrognanna fyrir breyttum aðstæðum.

Í ljós kom að hægt var að auka gæði hrognanna og þol þeirra við hnjaski með því að breyttri vinnslutækni. 

Framleitt var sýnishorn af ferksum ígulkerjahrognum og selt á Tsjukiji markaði í Japan.  Verð fyrir ígulkerjahrogn framleidd með nýrri aðferð námu allt að JPY 7000 / kg en hrogn sem framleidd voru með gamla laginu gáfu mest um JPY 5000 /kg.

Eins og áður sagði þá seljast ígulkerjahrogn framleidd á öðrum svæðum á allt að JPY 10.000 /kg á sama markaði og því ljóst að Gullker getur bætt sína framleiðslu enn frekar.



Senda grein

header7


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica