Fréttir
Thorskur
Eldisþorskur kallar eftir fóðri
(Ljósm.: Valdimar I. Gunnarss.)

Þorskkvóti til áframeldis

16.11.2005

Innan skamms verður auglýst eftir umsóknum í aflaheimildir til áframeldis á þorski. Umsóknum þarf að skila til sjóðsins í síðasta lagi 23. janúar 2006. Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað verður kvóta til áframeldis.

Með árlegri úthlutun á 500 tonna þorskeldiskvóta hefur orðið mikil aukning í áframeldi á þorski. Fyrsta úthlutun var fyrir fiskveiðiárið 2001/2002 og er nú lokið við fjórar úthlutanir af fimm. Á fiskveiðiárinu 2004/2005 sóttu 14 fyrirtæki um tæplega 790 tonna kvóta til áframeldis, en til ráðstöfunar voru 500 tonn, sem 11 fyrirtæki fengu að þessu sinni. Á árinu 2004 var slátrað um 595 tonnum af þorski úr áframeldi sem er veruleg aukning frá árinu 2003 en þá var slátrað um 390 tonnum. Áætlað er að slátrað verði um 1.200 tonn úr áframeldi á árinu 2005. Gert er ráð fyrir að stærsti hluti slátrunar fari fram síðustu 4 mánuði ársins.

Það er nokkuð ljóst að áframeldið hefur gert mönnum kleift að takast á við mörg tæknileg vandamál við þorskeldi og finna lausinir á þeim. Töluvert samstarf hefur verið á milli þeirra aðila sem stundað hafa áframeldi og hefur fiskeldishópur AVS leitt þá vinnu. Miklum upplýsingum hefur verið safnað og hefur Hafrannsóknastofnunin gefið út Handbók með leiðbeiningum um hvernig skuli standa að skýrslugerð. Ný handbók hefur verið gefin út og má nálgast hana hér.



Senda grein

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica