Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sveinn Margeirsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands og starfsmaður Rannóknastofnunar fiskiðnaðarins hefur verið að vinna í tveimur AVS verkefnum sem miða að því að tengja saman þætti sem hafa áhrif á vinnslunýtingu þorsks við uppruna afla. Sveinn kynnti nýlega doktorsverkefni sitt ,,Vinnsluspá þorskafla“ fyrir stjórnendum samstarfsfyrirtækjanna. Verkefnið felur í sér rannsóknar- og þróunarvinnu sem hefur það langtímamarkmið að auka arðsemi þorskvinnslu.
Hjá Hafrannsóknastofnun á Stað við Grindavík er unnið að því að framleiða þorskseiði til aleldis í sjókvíum. AVS hefur styrkt verkefnið og undanfarin þrjú ár hefur framleiðslan verið í kringum 200 þúsund seiði á ári. Með uppskölun á núverandi framleiðni væri hægt að framleiða 6 milljónir seiða á ári í einni 5.000 m2 eldisstöð en það er efniviður í meira en 20 þúsund tonn af þorski.
Meðal verkefna sem AVS styrkti árið 2003 var verkefnið náttúruleg örverudrepandi efni úr fiskum. Markmið þessa verkefnis var að einangra og greina efni úr ýmsum líffærum þorsks sem gætu haft bakteríudrepandi virkni. Einnig er stefnt að því að þróa aðferðir til nýtingar þessara efna í fiskeldi til að koma í veg fyrir sýkingar.
Að undanförnu hefur Margrét Bragadóttir matvælafræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins unnið að því að kanna mögulega notkun á loðnulýsi til manneldis. Verkefnið var fjármagnað af AVS og Rf. Margrét kynnti niðurstöður sínar nýverið á ráðstefnu WEFTA ( West European Fish Technologists Assosiation) í Antwerpen í Belgíu.