Fréttir
Starfsmenn Isagns
Frá vinstri Börkur, Sigurður og Jón

Ný beituframleiðsluvél

5.8.2005

Fyrirtækið Ísagn ehf. á Akranesi fékk styrk frá AVS rannsóknasjóðnum til að þróa og smíða nýja gerð af beituframleiðsluvél. Lokið hefur verið við smíði frumgerðar vélarinnar og var hún gangsett með viðhöfn í þann 4. ágúst sl. Impra styrkti þetta verkefni einnig og er þetta í fyrsta sinn sem AVS og Impra taka höndum saman og styrkja verkefni í sameiningu.

Beituframleiðsluvélin sker niður heila ferska síld í hentuga bita til beitingar, ætlunin er síðan að lausfrysta bitana og pakka í lofttæmdar umbúðir. Beitan verður því tilbúin til handbeitingar og unnið verður að því að þróa beitu fyrir beitingarvélar. Framleiðendur vélarinnar gera sér miklar vonir um að með þessu móti bætist nýting síldarinnar og létti um leið störf beitingamannsins.

Haraldus Sturlaugsson matar beituframleidsluvelina

Haraldur Sturlaugsson fyrrum forstjóri HB á Akranesi tók vélina formlega í notkun og naut til þess aðstoðar Jóns Frímannssonar.

Ný heimasíða fyrirtækisins er : www.isagn.is og þar má sjá m.a. myndband af vélinni.

Á myndinni efst á síðunni má sjá hönnuði vélarinnar þá Börk Jónsson, Sigurð Má Jónsson og Jón Frímannsson.

Senda grein

header13


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica