Fréttir
Kræklingar
Kræklingar
Góð fylling í íslenskum krækling

Kræklingaræktendur vinna saman að rannsóknum og þróun.

3.6.2005

Í lok árs 2003 fengu Samtök íslenskra kræklingaræktenda (SÍK) styrk frá AVS til að vinna að ýmsum þróunarverkefnum varðandi kræklingrækt. Megin markmið verkefnisins var að ná tökum á uppskeru og vinnslu kræklings, sem er ræktaður við strendur Íslands.

Verkefninu var skipt í nokkra verkþætti þar sem ýmis veigamikil atriði varðandi kræklingarækt voru könnuð.

SÍK festi kaup á uppskeruvélum og hafa tilraunir með vélasamstæðuna gengið vel, þó gera hafi þurft nokkrar smávægilegar breytingar.

Kræklingaræktendur stóðu einnig fyrir tilraunum með mismunandi gerðir safnara og báru saman eiginleika þeirra og hæfni til að halda skelinni fastri.Kræklingar á safnara

Líftími sokka sem halda utan um skelina á söfnurunum, var kannaður. Tvær gerðir voru skoðaðar, annars vegar sokkar gerða úr bómullarefni og hins vegar nælon netsokkar. Bómullar-sokkarnir reyndust ekki jafnvel og nælonsokkarnir.

Ýmsar ásætur geta gert kræklingaræktendum lífið leitt og SÍK stóð fyrir könnun á því hvers konar ásætur væru að trufla ræktendurna. Helstu ásætur geta verið hrúðurkarlar, snúðormar og mosadýr. Í ljós kom að hrúðurkarlar og snúðormar eru ekki vandamál, meðan mosadýr geta verið nokkuð áberandi.

Nokkuð er um það að skel brotni við vinnslu sérstaklega þegar verið er að ná skelinni af söfnurunum, en skel getur verið mjög mismunandi föst á söfnurunum. SÍK mun halda áfram að skoða hvaða leiðir eru bestar til að lágmarka þetta vandamál.

Vökvatap kræklings eftir uppskeru getur orðið vandamál ef ekki er gætt að kælingu og mikilvægt er að halda skelinni lifandi sem lengst því á meðan tapar hún ekki vökva.

Síðasti verkþáttur þessa verkefnis var að kanna ýmsa kosti við val á umbúðum, en það getur reynst flóknara en svo að hægt sé að leysa umbúðaþáttinn í eitt skipti fyrir öll.

 

Verkefnið tók á mörgum þáttum við ræktun kræklings eins og stefnt var að og hefur hjálpað til við að efla kræklingaræktina, en mörg mál þarf þó að skoða betur. Formaður SÍK er Jón Páll Baldvinsson og gefur hann gjarnan nánari upplýsingar um framgang kræklingaræktar á Íslandi. Hægt er að ná í hann í síma 861 7349.

 



Senda grein

header3


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica