Fréttir

Úthlutun styrkja AVS rannsóknasjóðs liggja nú fyrir

2.5.2005

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðsins um úthlutun styrkja að upphæð um 206 milljónir króna til 54 verkefna, alls var sótt um tæpar 400 milljónir til verkefna sem áætlað var að kostuðu einn milljarð króna.. AVS rannsóknasjóðurinn hefur 220 milljónir til ráðstöfunar á þessu ári.

Frestur til að skila umsóknum var 1. febrúar sl. og bárust rúmlega 90 umsóknir. Eins og kemur fram á heimasíðu sjóðsins þá eru verkefni flokkuð í fiskeldi, gæði, líftækni, markaðir og vinnsla. Sérstakir faghópar á vegum AVS fara yfir umsóknirnar og leggja á þær faglegt mat. Umsóknirnar sem bárust fyrir 1. febrúar sl. skiptust þannig milli flokka:

· Fiskeldi 24 umsóknir

· Gæði 9 umsóknir

· Líftækni13 umsóknir

· Markaðir 11 umsóknir

· Vinnsla 34 umsóknir

Áfram er hægt að sækja um forverkefnisstyrki.

Listi AVS verkefna 2005

Senda grein

header18


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica