Lágmörkun orkunotkunar í fiskiskipum með markvissri stýringu
AVS hefur stutt þróun MAREN orkustjórnunarkerfis fyrir fiskiskip. Kerfið safnar saman upplýsingum frá öllum helstu orkunotendum í skipum og greinir notkun orku. Beitt er fullkomnum tölvulíkönum af skipunum til að vinna með gögnin og finna leiðir til að spara orku. En þar sem öll orka um borð í skipum er fengin með brennslu jarðefnaeldsneytis þá er á sama tíma verið að lágmarka útblástur gróðurhúsalofttegunda um leið og ávinningur útgerðar felst í sparnaði við eldsneytiskaup.
MAREN kerfið hefur þegar verið sett upp í Jóni Kjartanssyni SU-111 og um borð í Ingunni AK-150, þar sem umtalsverður ávinningur hefur náðst í að stýra orkunotkun skipanna. Einnig hefur skapast rekjanleiki á notkun orku um borð í skipunum, sem ekki hefur verið til staðar áður. Mikill áhugi er á verkefninu um allan heim og verið að afgreiða tvö kerfi til Clearwater í Kanada, eitt í eldra skip sem er í rekstri og svo í glæsilegt skip sem er í smíðum í Tævan.
Á myndinni frá vinstri : Berglind Steindórsdóttir frá Útflutningsráði Íslands og Jón Ágúst Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Kristinn A. Aspelund sölu- og markaðstjóri báðir hjá Marorku.
Heimasíða: www.marorka.com

