Fréttir
Leturhumar í einbýli
Leturhumar_i_einbyli

Geymsla og flutningur á lifandi leturhumri

1.3.2005

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf fékk forverkefnisstyrk frá AVS rannsóknasjóðnum til að kanna möguleika á að veiða, geyma og flytja lifandi humar á hagkvæman hátt. Helstu aðferðir við veiðar, geymslu og flutning voru skoðaðar og einnig var kannað hver staða lifandi humars er á helstu mörkuðum.

Aðeins hluti humarsins var lifandi eftir tvær vikur í geymslu og er það ekki ásættanlegur árangur. Humarinn sem var notaður í tilraunina var veiddur í troll og var því í misjöfnu ásigkomulagi þegar hann var settur í geymslu. Greinilega þarf að huga betur að veiðiþættinum til þess að fá fullfríska einstaklinga. Líklega væri best að nota gildrur við veiðarnar eða nota troll á minna dýpi og toga hægar og skemur en gert var. Fyrstu upplýsingar frá markaðnum gefa til kynna að um verulegan ávinning gæti verið að ræða ef tekst að koma humrinum lifandi eða ferskum á markað. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlasetursins hefur mikla trú á þessu máli og undirbýr nú nýtt verkefni til þess að fullreyna þessa hugmynd.

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. var ábyrgðaraðili verkefnisins en það var unnið í samvinnu við Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins, Skinney Þinganes hf. og nemendur Tækniháskóla Íslands.



Senda grein

header11


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica