Fréttir

Marorka

Lágmörkun orkunotkunar í fiskiskipum með markvissri stýringu - 29.3.2005

AVS hefur stutt þróun MAREN orkustjórnunarkerfis fyrir fiskiskip. Kerfið safnar saman upplýsingum frá öllum helstu orkunotendum í skipum og greinir notkun orku. Beitt er fullkomnum tölvulíkönum af skipunum til að vinna með gögnin og finna leiðir til að spara orku. En þar sem öll orka um borð í skipum er fengin með brennslu jarðefnaeldsneytis þá er á sama tíma verið að lágmarka útblástur gróðurhúsalofttegunda um leið og ávinningur útgerðar felst í sparnaði við eldsneytiskaup.

Lesa nánar

 
Hverastryta

Lífvirk efni úr íslenskum sjávarlífverum - 15.3.2005

AVS rannsóknasjóðurinn styrkti verkefni sem hafði það m.a. að markmiði að kanna hvernig best væri að byggja upp þekkingu og færni á svið rannsókna og vinnslu lífvirkra efna úr sjó og sjávarfangi á Íslandi.

Lesa nánar

 
Sýnishorn af sæbjúgum

Er nægur kraftur í íslenskum sæbjúgum? - 7.3.2005

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins fékk forverkefnisstyrk frá AVS rannsóknasjóðnum til að setja upp mælingar á tveimur lífvirkum efnum í íslensku sjávarfangi. Við Íslandsstrendur finnst fjölbreytt lífríki sem í dag er einungis nýtt að hluta. Á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er unnið að nokkrum verkefnum þar sem stefnan er að kanna svonefnda lífvirkni (bioactivity) sjávarafurða en lífvirkni er forsenda þess að mögulegt sé að markaðssetja vörur sem markfæði (functional food).

Lesa nánar

 
Leturhumar í einbýli

Geymsla og flutningur á lifandi leturhumri - 1.3.2005

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf fékk forverkefnisstyrk frá AVS rannsóknasjóðnum til að kanna möguleika á að veiða, geyma og flytja lifandi humar á hagkvæman hátt. Helstu aðferðir við veiðar, geymslu og flutning voru skoðaðar og einnig var kannað hver staða lifandi humars er á helstu mörkuðum.

Lesa nánar

 

header6


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica