Mikill áhugi á AVS rannsóknasjóðnum
Þegar frestur til að skila umsóknum í rannsókna- og þróunarverkefni rann út þann 1. febrúar s.l. höfðu um 80 umsóknir borist. Sótt er um til eins árs í senn og samkvæmt upplýsingum í umsóknunum er gert ráð fyrir að kostnaður verkefnanna sé um 1 milljarður króna, en samtals er sótt um tæpar 400 milljónir.
AVS sjóðurinn og Líftækninetið hafa til ráðstöfunar um 240 milljónir. Sótt hefur verið um styrk í 12 framhaldsverkefni frá árunum 2003 og 2004 og ef þau hafa verið unnin samkvæmt áætlun og framvinda er í lagi þá má gera ráð fyrir að “skuldbindingar” sjóðsins séu um 40-50 milljónir vegna framhaldsverkefna.
Um 40% umsóknanna falla í þann flokk sem tekur á veiðum, vinnslu, gæðum og búnaði, 30% fellur undir fiskeldi, 20 % tilheyrir líftækninni og um 10% umsóknanna falla í flokk markaðsverkefna. Faghópar sjóðsins eru að meta umsóknirnar og er stefnt að því að niðurstöður um úthlutun liggi fyrir upp úr miðjum apríl.
Þó þessi frestur sé liðinn þá er enn opið fyrir þann möguleika að sækja um smáverkefni eða forverkefni.

