Umsóknafrestir AVS
Í fyrsta lagi er þeim sem hafa í huga að sækja um þorskkvóta til áframeldis bent á að frestur til að skila inn umsóknum er 10. janúar n.k.
Í öðru lagi þá er frestur til að skila inn umsóknum í stærri verkefni 1. febrúar n.k. Þessi frestur er fyrst og fremst hugsaður fyrir verkefni sem eru t.d. til lengri tíma en eins árs eða þar sem óskað er eftir hærri styrk en 1 milljón.
Í þriðja lagi er rétt að benda á að þessi frestur á ekki við um smáverkefni eða forverkefni, varðandi slík verkefni er enginn tiltekinn skilafrestur og er tekið á móti umsóknum allt árið.

