Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nýlega lauk verkefninu Ódýrir próteingjafar sem valkostur við hágæða fiskimjöl í þorskfóður sem styrkt var af AVS. Verkefnið hófst seinni hluta ársins 2003 og var tilraunum lokið um mitt ár 2004. Verkefnið var samstarfsverkefni Fóðurverksmiðjunnar Laxá, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Háskólans á Akureyri og Hólaskóla-Háskólans á Hólum. Verkefnisstjórar í verkefninu voru Jón Árnason og Rannveig Björnsdóttir. Framkvæmd var að mestu í höndum Þorvalds Þóroddssonar, nemanda í rannsóknatengdu meistaranámi við Auðlindadeild HA og Rf.
Lesa nánarMarkmið með ráðstefnunni er að gefa yfirlit yfir stöðu einstakra eildistegunda, meta samkeppnishæfni, koma með tillögur að mikilvægum rannsókna- og þróunarverkefnum og greina frá verkefnum er tengjast fiskeldi.