Listi
Áhrif eldis á umhverfi og villta stofna
Verkefnisstjóri: Guðrún Marteinsdóttir, runam@hi.is
Verkefni til 1 árs
Upphæð styrks: 1.000.000 kr
Upphafsár: 2005
Áætlað lokaár: 2006
Samstarfsaðilar: Líffræðistofnun HÍ, Hafrannsóknastofnun, Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Veiðimálastofnun
Markmið verkefnisins:
Meta stöðu þekkingar á sem flestum þáttum sem tengjast áhrifum eldis á umhverfi og villta fiskstofna. Í þessu sambandi verður settur saman faghópur sem mun leggja fram tillögu að áframhaldandi rannsóknavinnu til að veita stjórnvöldum upplýsingar og ráðgjöf um framkvæmd fiskeldis á Íslandi. Sérstök áhersla verður lögð á þætti er tengjast hugsanlegum hættum sem villtum stofnum og umhverfi getur stafað af fiskeldi.
Tilvísunarnúmer AVS: S 004-05
Frétt birtist um verkefnið 30. apríl 2007
Verkefninu er lokið og má nálgast hér skýrslu verkefnisins: Áhrif eldis á umhverfi og villta stofna

